Til umsækjenda í fornminjasjóð
Vegna þess stutta fyrirvara sem var á framlengingu
umsóknarfrests í sjóðinn, og þeim áherslum sem staðfest hefur verið að fylgja
því 30 milljón króna viðbótarfjármagni sem sjóðurinn fékk á fjárlögum fyrir
árið 2022, mega umsækjendur endurskoða umsóknir sem nú þegar hafa verið sendar
inn ef þeir svo kjósa. Slík endurskoðun krefst þó þess að ný umsókn sé send
inn, og í henni tekið skýrt fram að eldri umsókn sé dregin til baka (og þá
hvaða umsókn).