Fara í efni

Verndaráætlun fyrir Laugarnestanga undirrituð

Kristín Huld Sigurðardóttir og Dagur B. Eggertsson
Kristín Huld Sigurðardóttir og Dagur B. Eggertsson

Fimmtudaginn 25. ágúst 2016 undirrituðu Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður Minjastofnunar Íslands og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri staðfestingu á verndaráætlun fyrir minjasvæðið á Laugarnestanga í Reykjavík.



Tilgangur verndaráætlunar fyrir minjasvæðið á Laugarnestanga er að tryggja verndun fornleifanna á svæðinu á sem bestan hátt og veita leiðsögn um samspil verndunar og nýtingar, skipulags og reksturs.  Bæjarhóll Laugarness og kirkjugarðurinn sunnan í honum eru friðlýstar minjar en auk þess eru á svæðinu aldursfriðaðar fornleifar. Flestar tengjast minjarnar búsetu á Laugarnesbænum auk hjáleiga og kirkju en einnig er að finna minjar tengdar tíð embættismannabústaðar og holdsveikraspítala á staðnum auk stríðsminja. 

Allar framkvæmdir innan friðhelgaðs svæðis eru óheimilar án leyfis Minjastofnunar Íslands. Minjastofnun ber ábyrgð á minjunum og skal ríkið bera kostnað af viðhaldi  friðlýstra fornleifa. Landeigandi skal hins vegar bera kostnað af viðhaldi umhverfis minjanna, hvort sem er friðaðra eða friðlýstra, sem og viðhaldi aldursfriðaðra minja. Verndaráætlunina skal endurskoða annað hvert ár.