Vorfundur Minjastofnunar Íslands
Vorfundur Minjastofnunar Íslands verður haldinn fimmtudaginn 12. maí í Hannesarholti, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík. fundurinn hefst kl. 8.30 með morgunverði og hefst dagskrá kl. 9.00.
Nauðsynlegt er að skrá mætingu á staðinn þar sem boðið verður upp á léttan morgunverð. Skráning fer fram hér og stendur út þriðjudaginn 10. maí.
Fundinum verður einnig streymt í gegnum Youtube-síðu Minjastofnunar.
Dagskrá:
9:00 - Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra – Ávarp og setning
9:10 - Duncan McCallum, Strategy and Listing Director, Historic England:
Protecting Heritage in England – A brief introduction to the processes and to the attitudes of owners.
9:40 - Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands:
Vernd fornleifa - horft í baksýnisspegilinn.
9:55 - Jón Örn Árnason, lögfræðingur hjá Mörkinni:
Réttaráhrif friðlýsingar.
10:10 - Ingibjörg Marta Bjarnadóttir, sérfræðingur í teymi friðlýsinga og áætlana hjá Umhverfisstofnun:
Friðlýsingar á grundvelli náttúruverndarlaga.
10:25 - Borghildur Sturludóttir, arkitekt og deildarstjóri deiliskipulagsáætlana hjá Reykjavíkurborg:
Menningarminjar og borgarskipulag; viðbragð eða áætlun.
10:40 - Aðalheiður Magnúsdóttir, eigandi Fossa:
Nútíma fyrirtæki í fortíðar húsum.
Hlé
11:10 - Pallborðsumræður
11:50 - Slit vorfundar
Fundarstjóri er Eyþór Eðvarðsson stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun.
Allir velkomnir!